Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur

26. júní 2006 klukkan 03:30
jæja.. nú er tími til komin að ég gleðji landann með að skrifa blogg um fallegasta og yndislegasta mann heims:) Hann heitir Finnur og er vinur minn og Birtu. :) og ef þú þekkir hann ekki þá ertu að missa af frábærum gutta:) ... ég mæli með þvi að þið kynnist honum...en vill hann kynnast þér???? ... hm spurning... :)
 hann er algjört æði.. kemur mér alltaf í gott skap :) ... ógla gott að knúsann og alltaf þegar ég sé hann eða hugsa til hans þá brosi ég .. bara við að hugsa til þess hvað hann er æðislegur:) ... vá hvað Birta á gott að eiga svona yndislegan vin:) ... vildi að við gætum hist á hverjum degi... eeen svona er þetta líf... ég bý á egilsstöðum.. og Finnur á akureyri.... :S ...en við reynum að vera  í bandi :) :p ... æjj hann er svo mikið æði.. og Finnu ef þú lest þetta þá vil ég bara segja þér að ég sakna þín endalaust... sakna þín 1000 númerum of mikið...og það er bara gott.... en samt vildi að ég gæti fengið knúús frá þér á hverjum degi:) .... það er gott að tala við þig.. og þu ert bara frábærastur að hanga með :) ... MÉR ÞYKIR ENDALAUST VÆNT UM ÞIG!!!!!!

p.s
það er ekkert verra að vera þriðji aðilinn í sambandinu.... er það nokkuð?? .. eikker verður að vera karlmaðurinn í sambandinu.. heheehehe... fyndið:p

jamm.. þetta  var nú smá um hann Finn ... vó... ég sakna hans geðveikt.. og sakna Birtu náttla líka.. sakna hennar samt aðeins meira... skiljanlega.... en hann er bara fallegastur! OG ÉG Á HANN!!!!!
hehehe....
en jamm.. er bara buin að' vera að vinna.. var að vinna alla helgina.. og verð að vinna alveg þangað til 7 júlí:) .... nema..  fæ náttla frí á afmælisdaginn minn... þið eigið að vita hvenær hann er!!!! þið sem þekkið mig... þið vitið alveg hverja ég er að tala um .. þið þarna sem eruð vinir minir.. skilurru:) híhí... jamm .. ég og kata erum að huxa um að skella smá ammælisteiti  á fóninn og hella okkur yfir bakkus í hópi fallegs fólks:)

en ég er farin..
ciao

sjabbster- elska birtu og finn meira en allt:) .. elska Birtu samt mest :)

ak smak!

23. júní 2006 klukkan 03:58
jæja.. þá ætla ég að skrifa eikkað um seinustu helgi:)

fór á fimmtud. eftir vinnu með möggu og sindra.. við vorum komin heim til birtu um 8 leytið um kvöldið:) slökuðum aðeins á í sófanum hennar Birtu.. og ég varð eikkað feimin.. :S .. ég er alltaf feimin! kommon!
svo bara var ákveðið að kíkja út.. ég fór með Birtu uppí herbergi .. hún var að sýna mér íbúðina og fína herbergið sitt:) .. svo bara var farið í djammgallann:) og við löbbuðum frá innbænum og niðrí bæ.. byrjuðum á því að fara á kaffi Ak .. það var svoltið low stemning þar þannig að við sulluðum einum bjór í okkur.. og röltum svo á kránna..og þar var nú heldur róleg stemning.. en þó dj.. og þessi gaur mátti alveg sleppa því að vera þarna sko!!!!... svo var bara farið heim um 1 leytið .. og jamm.. það var nú ekkert rólegt loftið á milli mín og einnar manneskju .. en það róaðist að lokum :) ...

svo á föstudeginum vaknaði ég við að fallegasta kona heims kyssti mig og bauð mér góðan dag.. ég elska það að vakna svona :) og við kúrðum smá.. þangað til að fólk fór að kíkja í heimsókn.. og þá var byrjað að drekka og spjalla.. Kolla elskan kom í heimsókn til Birtu og var stefnarinn að fara á ball með Páli Óskar... eeen það var frekar farið niðrí bæ ...  skil ekki alveg afhverju.. en ég fylgdi bara fólkinu.. réð ekki neinu þarna.. hmmm..og þegar leið á djammið þá vildi kolla fara til Árna uppí KA heimili.. þannig að ég kvaddi hana bless.. bað vin hennar Birtu um að keyra henni og hann gerði það.. Takk steini.. :) .. en mig langaði svoltið að fara með kollu á pál.. en svona er þetta.. Takk kolla mín fyrir yndislegt kvöld:) gaman að hitta þig:)
...þannig að við fórum bara á Rocco og stemningin þar var LALA... ég hitti æskuvinkonu mina og talaði heillengi við hana um gömlu dagana:) ... svo bara var dansað smá og spjallað og farið heim að sofa um 8 leytið ..

Á laugard. vaknaði ég um 3 leytið.. Birta var löngu vöknuð ...hehe.. halló.. ég er pínu svefnpurka..:) ég er svo gömul.. verð að fá að hvíla lúin bein:p ... jamm og svo var pöntuð pizza :) ýkt góð pizza með frönskum á..og öllu tilheyrandi :) ógla gott.og ég át á mig gat.. tek það fram að Birta borðaði meira en ég:) .. þetta litla peð tíhí.. :) og svo var bara kúrt og farið í bað og djammgallan  og ölið tekið í hönd :) og við fórum á Café Amor og þar var geggjuð stemning.. eða mér fannst það.. :) ég dansaði fullt við halldóru æskuvinkonu mina og steina vin hennar Birtu.. og möggu :) en svo kom eikkað uppá ...og við færðum okkur um set og fórum á rocco.. eða ég og birta og fleira fólk löbbuðum á rocco.. en ég og birta fengum far hjá díönu elsku og fórum heim um 2 leytið ...
og sunnudagurinn var langt bestur!!!... ég og ástin mín lágum uppí rúmi mest allan daginn og kúrðum og spössuðumst , hlógum og kysstumst.. :) .. æj það var svo gott að eiga svona einn dag bara í leti í faðmi konunnar.. vildi að þeir væru fleiri.. :) þeir verða fleiri þegar líða tekur á :) .. . allt að gerast:)

en jamm þetta var helgin í svona smá dráttum.. nenni varla að skrifa .. vó ég nenni aldrei að skrifa blogg.. hehe.. :)  en jamm.. í dag var ég að vinna.. frá 8 í morgun til 3. byrjaði 8 afþvi að ég þreif ísvélina og svona leiðinlegt.. og hætti 3 afþvi að ég sendi sjálfa mig til læknis.. er með áhyggjur af eikkerjum 4 rauðum dílum sem að læknirinn sagði að kæmi bara og færi.. heheh.. ég er alltaf áhyggjufull.. útaf öllu.. :) eeen vá.. þetta læknisviðtal var nú þess virði.. hehehe.. nokkuð sæt stelpan sem ég fór til :) híhí. .:) 
og Birta .. NEI .. ekki einu sinni hugsa um það :) hehehhehehehhehehehehe:)

svo þegar ég kom heim frá lækninum þá sofnaði ég og vaknaði um 8 leytið í kvöld kíkti á rúntinn með möggu .. fórum að borða a búllunni og rúntuðumst í klukkutima þangað til að mig langaði heim... aað hringja í konuna. hehe.. ég er alltaf í símanum.. ég veit.. :)

jæja.. ætla bara kveðja hérna.. :) til hamingju Ester með það að vera fyrst að kommenta á síðuna mína.. í verðlaun færðu að hoppa einu sinni á trampólíninu mínu.. hehe. nei þú færð knús í klessu frá mér ;* lov u:)

gónótt og bless:)

sjabbster - aaaaaahhhhhhhhhh!

einu sinni blogg nörd, ávallt bloggnörd :p

22. júní 2006 klukkan 05:32
hæhæ:)
ég ætla að prufa að bloggast hérna á þessu dæmi :) ... mér finnst þetta ýkt kúl síða:) :p og vonandi stenst þetta undir væntingum:)

uu.. ég var á Ak um helgina hjá Birtu og það var æðiii :) geggjað gaman og æðislegt að vera hjá henni... en blogga betur um helgina bara seinna..

adios

sjabbster:)
Sjöfn