Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur

blogg!

11. febrúar 2009 klukkan 18:27

Ég var að hugsa áðan með það hvort ég ætti ekki bara að hætta að blogga.. en þar sem það eru ekki allir með feis eða myspace og geta ekki fylgst með þá blogga ég smá:)

voða langt síðan ég bloggaði! jólin og áramótin voru æðisleg:) vorum heima fyrir austan um jólin og fórum suður um áramótin:) 
 Ég og Kristín Helga trúlofuðum okkur um áramótin og það var svo æðislegt.. fórum út að horfa á flugeldana í vesturbænum og hringarnir voru settir upp kl 00:) skálað í kampavíni og alles:) þetta er var svo æðisleg tilfinning og svo gott að hafa fundið manneskjuna sem ég ætla að eyða ævinni með :) góð tilfinning að gera upp hug sinn og ennþá betri tilfinning að vera svona ástfangin !

Ég er svo hamingjusöm! sofna með henni á hverju kvöldi.. vakna með henni á hverjum morgni... og hún kemur fram við mig eins og prinsessu sko! og við erum svoo góðar við hvor aðra og erum voða líkar sem er gott ... eldum saman gerum eila allt saman:) höfum áhuga á eila öllu því sama og höfum það svo gott hérna á Héraðinu:) erum í fallegri íbúð á selásnum.. og báðar í vinnu, gott að hafa vinnu á meðan þessi "erfiði" tími gengur yfir!

... talandi um þessa "kreppu" hehe.. ég finn ekkert voða mikið fyrir henni! þetta nagar okkur tvær ekkert voða mikið.. finnum jú auðvitað fyrir hækkununum á matvöru og tóbaki til dæmis:) en annars eigum við svo góða að og stöndum öll saman í fjölskyldunum okkar:) Allir veita hvort öðrum ást og hlýju og allir hjálpsamir :)


en já.. kristín helga er að vinna , ég var að klára að vinna og er bara í heimsókn hjá gamla settinu! Pabbi gamli skreið upp í aldurinn 45 duglega í gærdag!! til hamingju gamli! við gáfum honum harðfisk og súkkulaði:) hehe:) ... og talandi um afmæli.. Björn Tómas okkar bróðir hennar kristínar helgu á afmæli á morgun .. sendum honum gjöf í fyrradag.. minnir mig.. ;) SVo náttla átti elskulega Svana okkar afmæli 9.feb.. þannig að það er nóg að gera í afmælis afmælis þessa dagana!

við erum að ganga saman inní helgarfrí á föstudaginn og er planið bara að hafa það rólegt.. fara í sund...út að labba... og horfa á videó! höfum ekkert planað það að fara eikkað út í sull svambl og skrallerí!

annars er bara gott að frétta af bænum.. kisurnar okkar farnar að stækka á fullu:) þær hafa það bara mjöööög gott:)

held ég hafi þetta bara gott í bili.... kemur í ljós hvort ég bloggi nokkuð fyrr en á næsta ári! en þangað til ... hafið það gott öll sömul!

knús og kossar til þín Kristín Helga:) ég elska þig að eilífu!! (K)

.............................................

sjöfn

Sjöfn
Kristín H. skrifar ...
 
æji sú sanna sæta mín! Ég elska þig mest i heimi!:* hlakka til ad sjá þig á eftir beibi min!:*:*:*:*:*:*:*:*:*
11. febrúar 2009 klukkan 18:51

Skrifa athugasemd