Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur

blogg!

11. febrúar 2009 klukkan 18:27

Ég var að hugsa áðan með það hvort ég ætti ekki bara að hætta að blogga.. en þar sem það eru ekki allir með feis eða myspace og geta ekki fylgst með þá blogga ég smá:)

voða langt síðan ég bloggaði! jólin og áramótin voru æðisleg:) vorum heima fyrir austan um jólin og fórum suður um áramótin:) 
 Ég og Kristín Helga trúlofuðum okkur um áramótin og það var svo æðislegt.. fórum út að horfa á flugeldana í vesturbænum og hringarnir voru settir upp kl 00:) skálað í kampavíni og alles:) þetta er var svo æðisleg tilfinning og svo gott að hafa fundið manneskjuna sem ég ætla að eyða ævinni með :) góð tilfinning að gera upp hug sinn og ennþá betri tilfinning að vera svona ástfangin !

Ég er svo hamingjusöm! sofna með henni á hverju kvöldi.. vakna með henni á hverjum morgni... og hún kemur fram við mig eins og prinsessu sko! og við erum svoo góðar við hvor aðra og erum voða líkar sem er gott ... eldum saman gerum eila allt saman:) höfum áhuga á eila öllu því sama og höfum það svo gott hérna á Héraðinu:) erum í fallegri íbúð á selásnum.. og báðar í vinnu, gott að hafa vinnu á meðan þessi "erfiði" tími gengur yfir!

... talandi um þessa "kreppu" hehe.. ég finn ekkert voða mikið fyrir henni! þetta nagar okkur tvær ekkert voða mikið.. finnum jú auðvitað fyrir hækkununum á matvöru og tóbaki til dæmis:) en annars eigum við svo góða að og stöndum öll saman í fjölskyldunum okkar:) Allir veita hvort öðrum ást og hlýju og allir hjálpsamir :)


en já.. kristín helga er að vinna , ég var að klára að vinna og er bara í heimsókn hjá gamla settinu! Pabbi gamli skreið upp í aldurinn 45 duglega í gærdag!! til hamingju gamli! við gáfum honum harðfisk og súkkulaði:) hehe:) ... og talandi um afmæli.. Björn Tómas okkar bróðir hennar kristínar helgu á afmæli á morgun .. sendum honum gjöf í fyrradag.. minnir mig.. ;) SVo náttla átti elskulega Svana okkar afmæli 9.feb.. þannig að það er nóg að gera í afmælis afmælis þessa dagana!

við erum að ganga saman inní helgarfrí á föstudaginn og er planið bara að hafa það rólegt.. fara í sund...út að labba... og horfa á videó! höfum ekkert planað það að fara eikkað út í sull svambl og skrallerí!

annars er bara gott að frétta af bænum.. kisurnar okkar farnar að stækka á fullu:) þær hafa það bara mjöööög gott:)

held ég hafi þetta bara gott í bili.... kemur í ljós hvort ég bloggi nokkuð fyrr en á næsta ári! en þangað til ... hafið það gott öll sömul!

knús og kossar til þín Kristín Helga:) ég elska þig að eilífu!! (K)

.............................................

sjöfn

Sjöfn

28.sept..

28. september 2008 klukkan 19:21
jæja.. helgin á enda... en fer ekki að vinna fyrr en á þriðjud. löng fríhelgi hjá mér og kristínu helgu líka reyndar:)
fórum að smala í gærmorgun á Giljum.. biðum eftir rollunum í tvo tíma á eikkerjum grasbala í hífandi roki og kulda... vorum að frjósa úr kulda í þessa tvo tíma og ákváðum að fara inn og fá okkur smá kaffi.. og hendast svo aftur á sama grasbalann:p og loksins þegar við vorum búnar að taka okkur stöðu í að hindra rollurnar í að fara ekkert nema beinustu leið inná tún þá komu þær á fullu og við stóðum bara og gerðum eila ekkert.. þær eru svo "heimavanar" þessar rollur.. hehe.. en þetta var fínt.. vorum svo komnar heim um fjögur leytið og fórum að huga að partýinu sem við vorum bunar að plana með möggu:)

.. fórum á Alcoa ballið í gær..það var ekkert spes.. svo við fórum heim um 2 leytið... og þegar heim var komið var skellt family guy í og hlegið :) 

já.. ég var víst búin að lofa frétt hingað inn.. eða allavega smá svona um það hvað við höfum gert seinustu daga...

Við fórum og skoðuðum hringa á mánudaginn í seinustu viku og völdum okkur fallega hringa sem við munum setja upp 31.des í Rvk... ég er svooooo spennt! :) ég réð ekki við mig og fór að hágráta þegar við gerðum upp hug okkar! Við erum svo hamingjusamar með þetta og sammála í einu og öllu:) Getur ekki verið betra þetta yndislega líf! gömlu settin okkar eru mjög ánægð með þessa ákvörðun og bíða spennt auðvitað líka! Eins og ég segi þá erum við hamingjusamar og mjög þakklátar að hafa fundið hvor aðra:)
vorum búnar að tala um þetta og kristín helga ætlaði að sjá um þetta.. en svo fannst okkur bara betra að við myndum gera þetta saman:) sem er bara mjög gott:)

þannig var nú það :D blússandi hamingja og hún heldur áfram og áfram:)

þangað til næst...

sjöfn og kristín helga:)

19. sept..

19. september 2008 klukkan 17:11
jeijj....... fríhelgi:)

ok ekki búin að blogga í einn og hálfan mánuð.. úffamæææj!

Við erum komnar í með okkar eigin íbúð.. í selásnum:) frekar þægilegt:) fluttum inn í byrjun sept og er allt annað að vera svona útaf fyrir sig:) mega flott og nice íbúð.. voða kósý.. alveg nóguu stór fyrir okkur tvær...! og svo er svona auka herbergi fyrir litla skoffínið hana systir mina sem er alltaf hjá okkur um helgar og svo þegar kristín helga er á næturvöktum því að ég meika ekki að vera ein á næturnar hehe... myrkfælin sjáiði til :)

við höfum hugsað okkur að fara á akureyri um miðjan okt.. en það er ekkert víst.. bara pæling...!!:) okkur langar svoo í jarðböðin á mývatni og svo ætlum við að hitta Birtu mína fyrrverandi því að hún er að verða þrítug 22.okt:) þannig að það verður örugglega eikkað haldið uppá það :) vonandi.. verðum bara að sjá til .. hvort við verðum báðar í fríi og svona:)

á morgun erum við sætust búnar að vera saman í 9 mánuði og við ætlum að hafa kósý kvöld eftir vinnu hjá kristínu helgu.. og hitta svo vinkonur okkar:) svo er 1 árs afmæli hjá soffíu kristínu litlu frænku á sunnudaginn og auðvitað látum við okkur ekki vanta þangað :)

annars er allt gott að frétta.. við voða hamingjusamar og allt að gerast bara... tell u later;);)

Við erum búnar að ákveða að vera hjá mömmu og pabba um jólin hérna á egs... og ætlum svo örugglega að vera fyrir sunnan um áramótin:) og btw það eru bara 92 dagar í árs afmælið okkar og 96 dagar til jóla:) sem er ekki langt finnst mér!!

... ég var að vinna í dyrunum í valaskjálf seinasta föstudag og það var bara mjög fínt.. :) erum báðar að vinna þar sem dyraverðir:)

en já... held ég hafi ekki meira að segja.... plís kommenta... þótt ég skrifi nú sjaldan hérna.. en ég skrifa þó;)
 
hasta luego!

sjöfn og kristín helga

austurlandið!

01. ágúst 2008 klukkan 15:43
hellú.. við erum fluttar á austurlandið fagra .. báðar byrjaðar að vinna og allt gengur bara vel.. enn sem komið er:) erum voða hamingjusamar eins og alltaf og getum ekki án hvorrar annarrar verið :)

Erum búnar að ákveða það að hætta við að fara á Gay-pride og vera bara hérna fyrir austan og hafa það gott:) ... hvað segiði bara um smá gaypride hérna fyrir austan:) tjah:)

eikkað er um sprengjuhótanir ... fyrir gaypride... það var vist sent eikkað hótunarbréf á stöð2 .. ! en maður veit ekkert! vona bara að þetta gangi bara vel og skemmtið ykkur ógó vel:)

jæja.. mín er orðin sein í vinnuna....vinna kvöldvaktir alla helgina:) vúbbí:)

gott í bili! múhahaha

-Sjöfn F.
Sjöfn

Sumarið planað??!! :)

11. júní 2008 klukkan 21:00
ég mætti kannski vera aðeins duglegri við að blogga... en er eila aldrei í tölvunni :)
En við sæturnar erum eila búnar að plana sumarið útí gegn;)

og hefst þetta gríðarlega sumar eftir 16 daga hjá okkur:) erum að fara til Köben 27. júní ... förum með næturrútu til Svíþjóðar og svo Noregs:) HLAKKA SVO TIL !! fæ loksins að hitta elskulegu tengdamömmu:) og litla bró hennar stínu:) Erum að fara í brúðkaup í noregi 5.júlí (afmælisdagurinn minn u remember!!!). Kristín Helga verður veislustjóri í brúðkaupinu og það á eftir að vera snilld:) brilliant alveg útí gegn:) svo ætlum við okkur að vaða inní H&M og fara í smá spreddíng, kaupa fullt af fötum ... jaaaaaaahh!! :) hm og svo verður bara djamm og eikkað spennó:)

svooo komum við heim á klakann 14.júlí... verðum hérna í Rvk í 2 daga áður en við setjumst að fyrir austan:) ...er að pæla að kíkja á LungA á Seyðis... en það er ekki alveg víst... en allavega.. við vorum að enda við að panta miða á midi.is til að sjá Damien Rice, Eivör og Magna á Borgafirði Eystri .. Bræðslan 2008... hef ekki farið á þennan viðburð en held að þetta eigi eftir að vera stuð.... hef reyndar aldrei komið til Borgafjarðar eystri:S hehe... en þetta verður bara fínt held ég.. :)

og svo er náttla Gay-pride 7-11 ágúst:) og þar látum við okkur ekki vanta:) og eftir það verðum við vonandi byrjaðar að vinna á fullu:) ætla samt að vinna aðeins áður en við förum aftur suður:)

en já. þetta verður örugglega eina færslan í langan tíma eins og alltaf hehe.. :)

uuuu.. já.. minni á partý á Qbar á laugard!! 14.júní!! goodbye partý! allir að koma og knúsa og fara í sleik!

jæja.. ætla að finna mér eikkað að gera annað en að vera í tölvunni í þessu geðveika veðri;)

Hadet bra!
 

austur eg skal fara

09. apríl 2008 klukkan 16:47
HLAKKA SVO TIL AÐ FLYTJA AUSTUR MEÐ STÍNUNNI MINNI! vildi bara deila því með ykkur:)

allt fellur í ljúfa löð hér á bæ og alltaf jafn mikil gleði og hamingja:)

Hef ekkert meira að segja held ég í bili....
 
adios

sjabbster
Sjöfn

Lífið í 107 rvk:)

02. mars 2008 klukkan 17:52
jájá jæja.. langt síðan ég bloggaði seinast... margt búið að gerast og allt bara gott að frétta:)
ég flutti í vesturbæinn til sætunnar minnar í byrjun febrúar:) og gengur allt bara vel:) ... fórum austur 8.feb og vorum til 11.feb:) það var mjöög nice:)

Eila strax og ég flutti hingað þá fékk ég vinnu.... er að vinna í Office 1 í smáralindinni:) það er mjöög nice:) ógó gott að vinna þarna, skemmtilegt fólk:) ég lasnaðist á fimmtudaginn seinasta, fór veik heim úr vinnu sökum kvefs,magakveisu og ógeði og lá í þessu lika á föstudaginn... en er öll að koma til núna:)

bíllinn okkar er komin í lag og þá get ég vonandi farið á bíl í vinnuna í staðinn fyrir að taka strææætó.. jii.. ég tek strætó kl 10 á morgnanna og er komin í smáralind rétt fyrir 11... byrja ða vinna 11..til 19... tek þá strætó hálf 8 og er ekki komin heim fyrr en hálf níu um kvöldið!! svoleiðis eru/voru virku dagarnir minir.... en ég vona að bíllinn standi fyrir sínu þessi elska svo ég komist í vinnuna og úr henni .. og verði komin heim á skikkó tíma:)


jáááá... hm.. kristín litaði á mér hárið svart.. mjög töff... og svo haha.. ákvað hún að flippa og setja svart efst í hanakambinn á sér hehe.. mjööög lekker:) flippið:)

er að hugsa um að fara í bíó í kvöld.. langar svo að sjá step up 2... en stínu fínu langar ekkert svo að sjá hana.... ætlum að reyna að fjölmenna í bíó:) .. hehe.. allavega kemur magga með okkur og held að Eva ösp láti sjá sig .. vonandi:)

en ég held að þetta sé nóg í bili:)

Mánudagur... 11 dagar:)

21. janúar 2008 klukkan 09:36
játs... ég sé konuna mína eftir 11 daga jiiii:) er ógó spennt!! þótt það sé soltið langt þangað til !!!
Þetta er búið að vera fokk erfitt sko... ég á egs að klára uppsagnarfrestinn sem var reyndar ekki langur hehehe.. ég fæ að vinna út janúar og svo bara byrja að pakka:)

en já.. ég átti eftir að blogga eikkað um rvk.. eikkað smá:) ... fórum á miðvikudeginum 9.jan til Hveragerðis.. my home town... kíktum í heimsókn til bróðir hennar mömmu og við fengum bara æðislegar móttökur þar:) Yndislegt að koma með kærustuna í heimsókn og það er tekið svona vel á móti manni.. því að þetta er náttla í fyrsta sinn sem ég kem með kærustuna mina til þeirra.. :) þetta var bara æði:) og já.. í Hurdy-gurdy var stoppað á Kaffi Kidda rót og fengið sér latte og köku og eikkað fínt:) .... komum svooo ógó þreyttar heim í Reynimelinn um sjöleytið... Vá hvað það var æði að koma í Hveró... nostralgíuflipp:) híhí:)

En já.. tíminn líður nú smá hratt sko!! jiii ég er buin að vera svooo límd við tv-ið yfir þessum handboltaleikjum sko!! jii það er ekki eðlilegt hvað ég er spennt fyrir þessu sko!! .... en annað var uppá teningum í gær... ég var svooo þunn að jii sko!! enda var fyllibittan eftir því a laug.kvöldið sko!!! jiminn!! hahha.. er að drepast í olnboganum og eikkað shit:S en ég held að þetta hafi verið mitt síðasta djamm á Egs í langan tima híhí.. næsta helgi verður bara farið í að vera heima hjá familíunni og svona:)

En jæjaa... vinnan kallar!!!  þessi vika verður vinna,vinna,vinna!!!! 9-18 alla daga... :) jeijj:D

en já.. ætla að enda þetta...!!!

sakna þín kristín mín!! og lööööööööööööv jú bebe!!!!!!

þriðjudagur:)

08. janúar 2008 klukkan 19:10

jii sko.. hehe... vorum að koma úr körfubolta.. fórum í KR-hverfið og vorum þar fyrir utan Grandaskóla hehe.. ógeeðslega gaman:)

Elskan mín hún Kristín Helga gaf mér ýkt flotta snjóúlpu.... hún er eikkað klikk sko.. hehe.. en æjj samt svo æðisleg við mig:) Oft að gefa mér eikkað og vá.. finn fyrir miklu öryggi hjá henni:)

fórum í gær á KFC og borðuðum... Kristín var eikkað slöpp svo að við vorum bara á rúntinum með hann Benna:) híhí... fórum á rúnt í Arnarnesið og skoðuðum uppáhaldshúsið mitt:) híhí... eða sko.. vorum bara fyrir utan...

svo fórum við að kaupa ís og já... ég gat nú eila ekkert borðað ísinn hehe.. geta aldrei borðað mikið af ís... :S ... þannig að við bara fengum okkur smá ísslörp og leiðin lá svo heim í Reynimelinn að kúra og hafa það næææs:)

jáhh.. og svo var hún elskulegust í fríi í dag svo við ákváðum að hringja í þórey vinkonu og hún sótti okkur....... og planið hjá okkur fyrir þennan dag var að kaupa körfubolta svo að við fórum í útilíf í Smáralind að kaupa körfubolta.... settumst svo á kaffihús og ég fékk mér marensköku mmmm.. hehe.. spjölluðum aðeins meira og svo þurfti þórey að skutla frænku sinni heim í Hafnarfjörðinn og við skelltum okkur bara með... En vá sko... sá sko geeeðveikan benz í smáralind!! jii sko!! kristín helga þurfti nánast að draga mig út hehehe.. bílasýki.is ....

en já... hehe.. hmm.. eftir Hafnarfjörðin.. þá fórum við niður á Hverfisgötu.. nánar tiltekið á Vitastíg og kíktum í Adam og Evu.... :) þar var skoðað og svona og svo skutlaði þórey okkur í KR-hverfið og við fórum í körfubolta.. .og fótbolta:) ææææði:)

jii hvað manni líður vel eftir svona hreyfingu:) híhí... sætan mín er einmitt að elda eikkað mjööög gott handa mér núna.. híhí.... eikkað grænmetisnamm:) ....

en já... þetta var svona eikkað frá afdrifum mínum í rvk í gær og í dag:)

well.. ætla að hjálpa sætunni í eldhúsinu ... :)

bæææææææææææææææææææææææææ

Sjöfn baby=)

í rvk.. er gott að vera:D

07. janúar 2008 klukkan 13:12
Hola...
ji hvað tíminn líður hratt.. en samt svoooo yndislegur tími sem ég er búin að eiga hérna í rvk!! vá sko! :) can't be more happier....:)

kom til rvk um sjö leitið á lau.:) .. fórum heim til okkar í Reynimelinn (hehe.. gaman að segja heima hehe) og byrjuðum á því að fá okkur bjór og svona.. og spjölluðum:) svo kom eva ösp sæta okkar .. í heimsókn og við fórum með henni niðrá Glaumbar í afmæli til Erlu vinkonu..
ji sko.. það var ýkt gaman.. mikið hlegið og já.. rifjað upp gamla tíma sem ég , Erla og Hildigunnur systir hennar áttum á egs á djamminu híhí:) love it sko! :) .. jámm.. hittum kristbjörgu, helenu og minnu fyrir utan .. þetta var geggjaðslega gaman sko:) allir ógó hressir:) ehhe.. svoltið svona gaman að fara á aðalega streitstað hehe.. æj já.. soltið öðruvísi af því að við erum ALLTAF á Q-bar (kjú-bar EVA ÖSP) hehe..

svo eftir amælið þá fórum við á Black... og það var aaalveg fínt sko!! Hitti nokkrar stelpur þar sem ég þekki .. gaman af þvi:) ... og já svo voru eikkerjir þarna sem ég kannast við en þekki ekki.. hmm.. ég og kristín brutum upp þennan "stemmara" fórum inná dansgólf og létum eins og hálfvitar:) hehe.. svo var kveikt í flugeldum... hinu megin við lækjargötu... og já.. það var ýkt næs að vera með konuna í fanginu og fylgjast með flugeldunum:) híhí..

svo var bara farið á Qbar og hitt alla hina:) og jáhh.. svolítið ölvun gerði viðvart við sig.. enda ákváðum við píurnar að drekka bara vatn það sem eftir væri.. hehe... fórum svo bara heim um 4 leitið ... stoppuðum á hlölla og löbbuðum heim:) æææææææðislegt kvöld sko!!

svo .. í gær fórum við í bíó.. .og það var alveg allt í lagi sko... vissi ekkert á hvaða mynd við vorum að fara.. en myndin heitir I'm Legend..með Will smith.. og jiii sko.. datt engan veginn í hug að hún væri svona  myndin sko! ... Zombie bregðu jii sko! haha.. var eins og ég veit ekki hvað í sætinu sko!! .. öskrandi og eikkað haha:)

vöknuðum í morgun kl. 9. aldrei þessu vant.. híhí.. skritið að vakna svona snemma eikkað.. fórum niður og fengum okkur morgun mat, horfðum á L-word og erum að fara núna út í göngutúr:) hlakka til :) ..... ætlum svo að fara að kaupa okkur körfubolta.. því að ég er jú búin að skora á hana í körfu:) híhí... :)

jiii sætan mín sko! híhí gaf mér ilmvatn og eikkað .. ji sko! hún er æði:)

held að það ekkert fleira í booooði:)

adios í bili!!!
Sjöfn